Þór/KA sigraði Selfoss 4-0

Fótbolti

Þór/KA 4-0 Selfoss
1-0 Lillý Rut Hlynsdóttir (8. mín)
2-0 Katla Ósk Rakelardóttir (60. mín)
3-0 Katla Ósk Rakelardóttir (62. mín)
4-0 Amanda Mist Pálsdóttir (92. mín)

Lið Þór/KA
Helena Jóns (m), Helena Rós, Lára Einars (Arna Benný, 73. mín), Arna Sif (f), Sylvía Rán (Ágústa Kristins, 84. mín), Heiða Ragney, Lillý Rut, Thanai Annis, Kayla Grimsley, Katla Ósk (Amanda Mist, 84. mín) og Hafrún Olgeirs. 
Ónotaðir varamenn: Sara (m), Snjólaug Heimis, Ragnhildur Inga og Sigrún Ösp.

Stelpurnar gerðu fjögur fín mörk og hefðu þau hæglega getað verið fleiri. Allir leikmenn liðsins stóðu sig ágætlega og styrkir það liðið talsvert að fá Thanai og Kayla aftur. Þór/KA endaði með sjö stig í fimm leikjum en önnur lið eiga leik til góða og því ekki ljóst í hvaða sæti stelpurnar verða. Það er þó ljóst að þær eru komnar í undanúrslit sem verða leikin í lok mánaðarins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband