Knattspyrnufélag Akureyrar

Knattspyrnufélag Akureyrar

Fréttir

Glæsilegur KA trefill kominn í sölu

Menn mátuðu trefilinn.
Nú fyrr í dag kom skemmtileg sending frá Englandi þegar treflar sem unnið hefur verið í að kaupa fyrir félagið í þónokkurn tíma enduðu ferð sína og mættu í félagsheimilið okkar.

Treflarnir eru hinir glæsilegustu eins og má sjá á meðfylgjandi mynd af strákunum vera máta þá í dag.

Verðið á hverjum trefli verður 2.500 krónur. Hinsvegar ætlum við að bjóða fólki að ef það kaupir 3 stykki eða fleiri í einu að fá þá á 2.000 krónur, enda þurfa allir á heimilinu að eiga sinn trefil.

Frá og með morgundeginum verður trefillinn kominn í sölu upp í KA heimili. Ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar er hægt að hafa samband við Ólaf í síma 824-2720 eða Ragnar í 865-1712, sem og KA heimilið - 462-3482 (frá og með morgundeginum)

Leikur KA og KF færður til laugardags

Ólafsfjarðarvöllur í gær. Mynd: Jóhann Már
KA átti að ferðast til Ólafsfjarðar næst komandi fimmtudag og leika þar við knattspyrnufélag Fjallabyggðar. Eins og við þekkjum vel hér á Akureyri þá eru vellir að koma illa undan vetri og er enþó nokkur snjór enþá á Ólafsfirði en þrátt fyrir það hefur völlur þeirra komist ágætlega undan snjónum sem mokaður hefur verið af vellinum. Félögin komust í sameiningu að því í dag að færa leikinn til Laugardags og binda þannig vonir við að snjó létti við völlinn en stúkan og allt í kring er á bólakafi. Leikurinn verður því flautaður á kl 14:00 á Laugardaginn næsta. Nánar um leikinn þegar nær dregur.

Myndir frá lokahóf handknattleiksdeildar


Lokahóf handknattleiksdeildar yngri flokka KA var haldið föstudaginn 17. maí síðastliðinní KA heimilinu. Mikið fjölmenni var og að venju var mikið fjör í húsinu. Farið var í leiki og verðlaun veitt fyrir árangur vetrarins. Í lokin var síðan heljarinnar pizzuveisla frá Greifanum.

Þórir Tryggvason mætti með myndavélina og má hér sjá fjölmargar skemmtilegar myndir frá hófinu.

Lesa meira

Umfjöllun: Svekkjandi jafntefli gegn Fjölni

Mads skoraði einkar laglegt mark
KA tók á móti Fjölni í 2. umferð 1. deildar í dag en leikurinn fór fram innandyra í Boganum vegna þess að Akureyrarvöllur er ekki klár í slaginn. Lesa meira

Fyrsti heimaleikur á þessu sumri.

Ævar Ingi á fullri ferð.
Á morgun tökum við á móti Fjölni frá Grafarvogi  í annar umferð íslandsmótsins í knattspyrnu.  Leikurinn fer fram  í Boganum og hefst kl 14. Lesa meira

KEA styrkir KA og Þór

Hrefna - Halldór - Árni

Í mörg ár hefur KEA stutt við íþróttafélögin KA og Þór og reynst einn af helstu styrktaraðilum félaganna.  Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, hefur undirritað styrktarsamninga  við félögin vegna ársins 2013 og skrifaði Hrefna G. Torfadóttir undir samninginn fyrir hönd KA og Árni Óðinsson fyrir hönd Þórs.  Þau voru sammála um að stuðningur KEA væri afar þýðingarmikill fyrir félögin og efldi starf og uppbyggingu þeirra umtalsvert. Halldór Jóhannsson sagði að KEA legði jafnan metnað sinn í að skila jákvæðri afkomu félagsins út í samfélagið til eflingar íþrótta- og æskulýðsstarfi á félagssvæðinu og undirritun þessara samninga væri því mikið gleðiefni.


Handboltaskóli Bjarna Fritz 10. - 21. júní


Handboltaskóli Bjarna Fritz verður haldinn á Akureyri 10. - 21. júní og er ætlaður ungmennum 10 ára og eldri. Aðstoðarmaður Bjarna á námskeiðinu er enginn annar en Oddur Gretarsson og munu þeir án efa mynda flott teymi. Skipt verður í hópa eftir aldri og því munu strákar og stelpur æfa saman.
Handboltaskólinn verður frá mánudeginum 10. júní til föstudagsins 21. júní. Lesa meira

Lokahóf handknattleiksdeildar


Lokahóf handknattleiksdeildar yngri flokka KA verður haldið föstudaginn 17. maí frá klukkan 18:00 til 20:00 í KA heimilinu. Farið verður í leiki og verðlaun veitt fyrir árangur vetrarins.
Að vanda verður heljarinnar pizzuveisla frá Greifanum.
Allir iðkendur eru hvattir til að mæta með pabba, mömmu og systkinum. Höfum gaman saman og fögnum árangri vetrarins og þjöppum okkur saman fyrir næsta vetur!

Lesa meira

Bikarinn hefst með leik gegn Magna í kvöld

Í kvöld verður flautað til leiks í Borgunarbikarnum þegar KA fær 3.deildarlið Magna í heimsókn en leikið verður í Boganum! Leikurinn hefst klukkan 18:00 og eru allir KA menn hvattir til að leggja leið sína á völlinn til að hvetja okkar menn!

Þess má geta að ársmiðasala er enþá í fullum gangi og hægt er að kaupa miða hjá stjórnarmönnum knattspyrnudeildar og einnig með því að senda póst á gassi@ka-sport.is eða gunninella@ka-sport.is. Verðin eru tvö en annars vegar 12.000 kr fyrir ársmiða án kaffi í leikhléi og svo 18.500 kr með inniföldu kaffi og með'ví í hálfleik!

Umfjöllun: Sigur gegn Selfossi í fyrsta leik

Hallgrímur Mar skoraði mark KA í leiknum
KA-menn sóttu þrjú góð stig á Selfoss í dag þegar þeir léku gegn heimamönnum. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en yfir allt var KA mun sterkari aðilinn í leiknum. Lesa meira

Fyrirmyndafélag
Grófargil
Gamath

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Blak

Tennis- og badminton