Knattspyrnufélag Akureyrar : Blakdeild

Blak

IMG_1172.JPGIMG_2153a.JPGIMG_2255a.JPGIMG_0976.JPGIMG_1000b.jpgIMG_2247a.jpgIMG_1099b.jpgIMG_2310.JPGIMG_1132.JPGIMG_1006.JPGIMG_2199.JPGIMG_0918.JPG

Fréttir

Magnaður sigur KA/Þórs í spennuleik

KA/Þór tók á móti HK í N1 deild kvenna á laugardaginn. Akureyrarstelpurnar báru enga minnimáttarkennd fyrir Kópavogsstúlkum sem eru í 3. sæti deildarinnar og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins. KA/Þór hafði prýðistök á leiknum, tölurnar 8-4 og 11-7 sáust á markatöflunni en HK náði að minnka muninn í 11-8 fyrir lok hálfleiksins með marki beint úr aukakasti eftir að leiktímanum var lokið. Lesa meira

Hvar er KA-kerran?

Síðastliðinn föstudag hvarf KA-kerran (hún er rækilega merkt KA) af planinu norðan við íþróttahúsið. Stundum hafa góðvinir félagsins fengið kerruna lánaða og við viljum trúa því að svo sé einnig nú, en viðkomandi hafi gleymt að biðja um leyfi. Ef svo er biðjum við þann sem tók kerruna að skila henni hið fyrsta. Lesa meira

KA bikarmeistari í 2. og 3. fl.

Bikarmóti BLÍ í 2. og 3. flokki beggja kynja lauk á Akureyri sunnudaginn 22. janúar. Liðin í 2. fl. kk drógu sig úr keppni og því voru engir bikarmeistarar krýndir í þeim flokki þetta árið. Mótið tókst í alla staði vel og voru leikmenn og þjálfarar/fararstjórar sjálfum sér og íþróttafélögum sínum til mikils sóma. KA var bikarmeistari í öllum flokkum þ.e. 2. og 3. fl. kvk og 3. fl. kk.

Lesa meira

Myndir frá leik KA og Þróttar Nes á laugardaginn


Íslandsmeistarar Þróttar frá Neskaupstað tylltu sér í fjórða sæti í Mikasadeild kvenna í blaki með 3:0 sigri á KA en liðin mættust á Akureyri á laugardaginn. 
Þróttur vann fyrstu hrinu leiksins 25:13. Meiri spenna var í annarri hrinunni en gestirnir höfðu betur 25:17. Þriðja hrina leiksins fór svo 25:12 fyrir Þrótt og því þrjú stig í höfn hjá Íslandsmeisturunum.  Lesa meira

Annáll ársins 2011 fluttur á afmælishátíð KA 8. janúar

Hátt í tvöhundruð manns komu á KA-daginn 8. janúar sl.  Mynd: Þórir Tryggvason.
Eftirfarandi pistil flutti Sigfús Karlsson á afmælishátíðinni.

Ágætu KA félagar. Það er orðin ágæt hefð hér í þessu afmælishófi að stikla á stóru í því sem gerst hefur í félaginu okkar á liðnu ári.  Hér kemur því annáll fyrir árið 2011. Félagsstarfið hefur verið blómlegt á árinu og árangur allra deilda verið viðunandi, hvort sem við mælum árangurinn inni á íþróttavellinum eða í félags- og uppeldisstarfi. KA hefur verið fyrirmyndarfélag ÍSÍ undanfarin 5 ár og var sá gæðastimpill á félaginu endurnýjaður í byrjun árs.   Lesa meira

Fyrirmyndafélag
Fides
Vís

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak