Tilnefningar til Böggubikarsins 2023

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Blak

Böggubikarinn verður afhendur í tíunda skiptið í ár á 96 ára afmæli KA þann 8. janúar næstkomandi en alls eru sex ungir og öflugir iðkendur tilnefndir fyrir árið 2023 frá deildum félagsins.

Böggubikarinn er farandbikar sem veittur er einstaklingum, pilti og stúlku, á aldrinum 16-19 ára sem þykja efnileg í sinni grein en ekki síður mjög sterk félagslega. Einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum og eru bæði jákvæð og hvetjandi. Böggubikarinn er veittur í minningu Sigurbjargar Níelsdóttur, Böggu, sem fædd var þann 16. júlí 1958 og lést þann 25. september 2011. Bróðir Böggu, Gunnar Níelsson, er verndari verðlaunanna en þau voru fyrst afhend árið 2015 á 87 ára afmæli KA.

Amalía stimplaði sig inn sem efnilegan og öflugan meistaraflokksleikmann í liði Þórs/KA á nýliðnu fótboltasumri. Hún er tæknilega góður miðjumaður sem hefur gott auga fyrir spili. Með dugnaði og vinnusemi þá hefur hún tekið eftirverðarteknum framförum.

Hún spilaði 24 af 25 leikjum liðsins í Bestu deildinni sem er athyglisvert í ljósi þess að þetta voru hennar fyrstu leikir í efstu deild. Hún varð einnig Íslandsmeistari með 2. fl félagsins sem sigraði mótið með yfirburðum. Hún spilaði sína fyrstu landsleiki á árinu þegar hún spilaði sitthvorn leikinn með U18 og U19 ára landsliðum Íslands.

Auður Pétursdóttir sem leikur í stöðu miðju hefur þrátt fyrir ungan aldur verið að koma gríðarlega sterk inn í öflugt meistaraflokkslið KA í blaki sem er eins og flestir ættu að vita Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar eftir magnaða síðustu leiktíð.

Auður var valin í U17 og U19 ára landslið Íslands og stóð sig gífurlega vel á því stóra sviði. Auður er ótrúlegur leikmaður og manneskja bæði innan vallar sem utan, hún er samviskusöm, metnaðargjörn og hvetjandi. Hún er dugleg á æfingum og stundar sína íþrótt af mikilli kappsemi og er góður liðsfélagi. Auður er yngri iðkendum félagsins góð fyrirmynd og verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.

Lydía er þrátt fyrir ungan aldur nú þegar orðin ein af máttarstólpum í meistaraflokksliði KA/Þórs. Hún er gríðarlega efnilegur leikstjórnandi, með mikinn leikskilning og er auk þess frábær skotmaður. Leiðtogahæfileikana hefur hún nóg af og var fyrirliði U-17 landsliðs kvenna sem gerði góða hluti á EM í sumar.

Þar stóð hún sig gríðarlega vel og var sjöunda markahæst á mótinu. Hún var einnig hluti af 3.fl liði KA/þór sem komumst í undanúrslit á Íslandsmótinu á síðasta keppnistímabili. Lydía er frábær félagsmaður og gefur mikið af sér

Antoni Jan Zurawski Hann varð bikar og Íslandsmeistari með U16 liðinu ásamt því að Íslandsmeistari með meistaraflokki. Hann var valinn í U17 landsliðið og spilaði á NEVZA. Antoni er ótrúlega öflugur leikmaður bæði innan vallar og utan, en hann hefur sýnt einstaka leiðtoga hæfileika og leggur mikinn metnað í æfingar.

Magnús er ótrúlega vinnusamur og duglegur strákur með mikinn metnað. Hann er harður varnarmaður og fylginn sér þar. Í sókninni er hann ákveðinn og beinskeyttur með góðan skilning á leiknum. Þá hefur hann mikla leiðtogahæfni og ekki oft sem maður sér stráka á þessum aldri jafn góða í að stýra og stjórna. Þessir eiginleikar gerðu það að verkum að hann varð fyrirliði U-17 landsliðsins sem fór á tvö mót í sumar og gerði þar góða hluti.

Þá er Magnús hluti af 2006 liði KA sem er eitt allra besta yngri flokka sem sést hefur á Íslandi en það lið tapaði ekki leik í tvö ár í 4. flokki og vann alla titla sem voru í boði. Að auki sigraði liðið Partille Cup sem er stærsta handboltamót heims en þar var Magnús lykilmaður. Í dag er Magnús svo orðinn stór hluti af meistaraflokksliði KA þrátt fyrir að vera bara 17 ára gamall. Magnús er frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins og hefur undanfarin ár verið duglegur að gefa af sér til þeirra, sem þjálfari margra yngri flokka.

Mikael Breki var fyrirliði Íslands- og bikarmeistara 3. flokki KA ásamt því að vera hluti af meistaraflokkshóp KA og U17 ára liði Íslands. Mikael Breki hefur alla tíð verið sterkur leiðtogi í sínum hópum. Hann fer fyrir hópnum með dugnaði og sigurvilja og á sama tíma er hann jákvæður og hvetjandi við alla liðsfélaga sína. Hann missti af vorinu vegna meiðsla en sat ekki auðum höndum heldur var hann duglegur í styrktarsalnum til að vera klár í restinni af sumrinu. Sem leikmaður þá er hann vel spilandi, talandi og duglegur miðjumaður. Hann er því fyrirmynd fyrir aðra í félaginu bæði sem persóna og sem leikmaður.

Mikael Breki var lykilmaður og leiðtogi í 3. fl sem eins og áður kom fram varð Íslands- og bikarmeistarar. Hann var þar hluti af sterkri liðsheild. Mikael Breki lék með U17 ára liði Íslands þar sem hann var í byrjunarliðinu sem miðjumaður. Samtals tók hann þátt í sex leikjum með liðinu sem var hársbreidd frá því að komast áfram úr undankeppni EM. Mikael Breki kom einnig inná í einum leik í Bestu deildinni ásamt því að vera í Evrópuhóp KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is