Aftur sigur og tap

Blak

Á laugardaginn mætti karlalið KA Fylki og sigruðu þeir 3-1. KA menn tóku fyrstu tvær hrin­urn­ar 25:18 og 25:16 en Fylk­ir vann þá þriðju 27:25. KA menn tóku svo þá fjórðu 25:23 og mátti því litlu muna að Fylk­ir næði því að knýja fram odda­hrinu. Piotr Kempisty var stiga­hæst­ur hjá KA með 21 stig og næstur honum var Valþór Ingi Karls­son. Hjá Fylki voru þeir Gaet­an Sak­indi og Jan­is Novi­kovs stiga­hæst­ir með 11 stig hvor.

Kvennalið KA mætti sterku liði Aft­ur­eld­ingar aftur á laugardaginn en náðu sér ekki á strik. Afturelding sigraði 3:0 og fóru hrin­unrnar 25:10, 25:11 og 25:11. Ekki bárust tölur yfir stigaskor stelpnanna að þessu sinni. 

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband