Ævar Ingi framlengir til 2016 !

Fótbolti
Ævar Ingi framlengir til 2016 !
Samningar handsalaðir

Nú í dag skrifaði Ævar Ingi Jóhannesson undir 2 ára framlengingu á samningi sínum við KA og er því samningsbundinn félaginu til 2016. Ævar Ingi, sem á að baki um annan tug leikja með U17 og U19 landsliðum Íslands, hefur verið einn af okkar betri mönnum í sumar en hefur hann spilað 9 leiki og skorað í þeim 3 mörk.

Knattspyrnudeild er hæstánægð með að tryggja sér þjónustu Ævars áfram, sem er klárlega leikmaður sem á framtíðina fyrir sér. Er þetta annar ungur landsliðsmaður okkar sem skrifar undir á stuttum tíma, en Fannar Hafsteinsson, markmaður U19 skrifaði undir fyrir ekki svo löngu. Ungu strákarnir okkar ætla sér því greinilega að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem stendur yfir hjá okkur af fullum krafti. 

Óskum við Ævari til hamingju með nýjan samning og vonandi mun hann halda upp á hann með góðri frammistöðu gegn ÍA á skaganum á morgun.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband