Dagana 3.-6. júlí 2013 verður hið árlega N1-mót KA í 5. flokki drengja í knattspyrnu haldið á KA-svæðinu á Akureyri.
- Mótið hefst um miðjan dag miðvikudaginn 3. júlí og lýkur með verðlaunaafhendingu og mótsslitum laugardaginn 6. júlí.
- Úrslitaleikir fara fram seinnipart laugardags og að þeim loknum verður lokahófið haldið um kl. 18.
- Gist verður í skólum á nágrenni KA-vallar, þátttakendur þurfa að taka með sér dýnur og svefnpoka.
- Þátttökugjald er kr. 16.000 fyrir hvern einstakling. Sama þátttökugjald er fyrir leikmenn, þjálfara og fararstjóra. Innifalið í þátttökugjaldi er m.a. mótsgjald, gisting, morgunmatur, hádegisverður, kvöldmatur, sund o.fl.
- Þátttökutilkynningu þarf að staðfesta eigi síðar en 10. maí 2013.
- Staðfestingargjald er kr. 17.000 fyrir 1 til 2 lið.
- Staðfestingargjald er kr. 28.000 fyrir 3 lið og fleiri.
- Staðfestingargjald greiðist eigi síðar en 15. maí 2013. Vinsamlegast takið fram fyrir hvaða lið er greitt. (sjá bankanr. hér að neðan.)
- Staðfestingargjald dregst ekki frá við greiðslu keppnisgjalda.
- Spilað verður í A, B, C, D, E og hugsanlega F- liðum.
- Skrái félag 3 lið eða fleiri í N1-mótið skal eitt lið vera skráð sem A-lið.
- Skrái félag 8 lið eða fleiri í N1-mótið skulu tvö lið vera skráð sem A-lið.
- Leiktími er 2 x 15 mínútur.
- Verðlaunapeningar verða veittir fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki og veglegur farandbikar til sigurliðs hvers flokks, aukaverðlaun verða veitt fyrir háttvísi og framkomu, síðan er N1-styttan veitt til þess félags sem bestum samnlögðum árangri nær ásamt ýmsum aukaverðlaunum til leikmanna.
- N1 gefur hverjum þátttakanda góða gjöf.
- Mikilvægt er að senda okkur allar upplýsingar um ykkar lið ásamt tenglum þannig að við getum verið í sem bestu sambandi frá upphafi.
Gunnar Gunnarsson – Gassi – framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA tekur við skráningum á netfangið gassi@ka-sport.is
Sími Gassa er 899 7888.
KA-heimilið sími: 462 3482
Þátttökutilkynning á N1-mót KA 2013
Nafn félags:
Fjöldi þátttakenda:
Áætlaður fjöldi fararstjóra:
Fjöldi liða:
Þjálfari/ar:
Símar:
Netfang:
Forsvarsmaður:
Símar:
Netfang:
Ef viðkomandi er ekki með netfang þá er mjög mikilvægt (ef hægt er) að finna einhvern sem senda má upplýsingar til.
K.A. knattspyrnudeild.
KA-heimilið við Dalsbraut, 600 Akureyri.
Sími: 462 3482; Fax: 461 1839
Banki: 0162-26-1660
Eigandi: KA.-kt. 510991-1849