Glæsilegt myndband sem unnið var á meðan mótinu stóð var sýnt á tveimur risaskjám á lokahófinu. Það myndband má sjá hér að neðan.
N1-mót KA 2010 – Myndband frá lokahófi
Uploaded by andrifannar. – Discover the latest sports and extreme videos.
Glæsilegt myndband sem unnið var á meðan mótinu stóð var sýnt á tveimur risaskjám á lokahófinu. Það myndband má sjá hér að neðan.
N1-mót KA 2010 – Myndband frá lokahófi
Uploaded by andrifannar. – Discover the latest sports and extreme videos.
Á lokahófi N1-mótsins í kvöld var þremur efstu liðum í hverri deild afhent sín verðlaun og einnig voru afhent einstaklingsverðlaun, verðlaun fyrir prúðustu framkomu innan vallar og utan í matsal og skólum og verðlaun fyrir sameiginlegan árangur. Um verðlaunaafhendingu sáu Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari karlalandsliðsins og Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ
Besti markmaður
Franska deildin – Jóhannes Valur ÍA
Enska deildin – Jón Gunnar Hafsteinsson ÍA
Danska deildin – Breki Ólafsson KR
Chileanska deildin – Birkir Orri Ragnarsson Haukum
Brasilíska deildin – Óskar Sigþórsson FH
Argentína deildin – Bjarki Sturlaugsson Fylki
Besti varnarmaður
Franska deildin – Andrés Hlynsson KR
Enska deildin – Eyþór Eysteinsson Haukum
Danska deildin – Arnar Steinn Helgason Breiðabliki
Chileanska deildin – Kristinn Pétursson Haukum
Brasilíska deildin – Alexander Örn Kárason ÍA
Argentínska deildin – Birkir Valur Jónsson HK
Besti sóknarmaður
Franska deildin – Atli Hrafn Andrason KR
Enska deildin – Bjartur Snær Sigurðarson Fjölni
Danska deildin – Einar Húnfjörð KR
Chileanska deildin – Hörður Bjarnar Hallmarsson FH
Brasilíska deildin – Daniel Örn Griffin ÍBV
Argentínska deildin – Denis Hoda KR
Sveinsbikarinn fyrir prúðustu framkomu innan vallar og utan í matsal og skólum. Gefinn til minningar um Svein Brynjólfsson, fyrrum formann knattspyrnudeildar KA – Keflavík
Verðlaun frá Sjóvá fyrir prúðustu framkomu innan vallar – Þróttur Vogum og Njarðvík
Myndir frá Pedromyndum á Akureyri – Magnús Ólafsson Stjörnunni, Tómas Óskarsson Keflavík og Jökull Hermannsson Selfossi.
N1-bikarinn fyrir besta sameiginlega árangurinn – KR
Þá er öllum úrslitaleikjum lokið í N1-mótinu.
Í argentínsku deildinni sigruðu KR-ingar með þremur mörkum gegn tveimur eftir dramatíska vítaspyrnukeppni. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma.
Í brasilísku deildinni réðust úrslit einnig í vítaspyrnukeppni og höfðu FH-ingar sigur á Eyjamönnum með fimm mörkum gegn fjórum.
Í chileönsku deildinni sigruðu Haukar nágranna sína í FH með einu marki gegn engu.
Í dönsku deildinni tókust Reykjavíkurliðin KR og Valur á og höfðu KR-ingar betur og sigruðu með tveimur mörkum gegn einu.
Í ensku deildinni réðust úrslit í vítaspyrnukeppni og sigruðu Fjölnir úr Grafarvogi Hauka úr Hafnarfirði með þremur mörkum gegn tveimur.
Í frönsku deildinni höfðu KR-ingar öruggan sigur á Skagamönnum með fjórum mörkum gegn engu.
Rétt er að minna á að öll úrslit leikja í N1 mótinu má sjá hér til vinstri undir “Úrslit/staða”.
Leikur Argentínu og Þýskalands í 8 liða úrslitum HM er sýndur á breiðtjaldi í íþróttahúsinu og hefst hann klukkan 14. Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Gengið inn í íþróttahúsið að vestan – vallarmegin.
Þá liggur orðið fyrir hvaða lið leika til úrslita í N1-mótinu í ár. Í argentínsku deildinni spila Stjarnan og KR klukkan 16.45 á velli 2. Klukkan 16.10 verða allir hinir fimm úrslitaleikirnir. Í brasilísku deildinni spila ÍBV og FH til úrslita á velli 2, í chileönsku deildinni spila FH og Haukar til úrslita á velli 1, í dönsku deildinni spila KR og Valur til úrslita á velli 3, í ensku deildinni spila Fjölnir og Haukar til úrslita á velli 4 og í þeirri frönsku spila ÍA og KR til úrslita.
Keppni er komin í fullan gang á fjórða og síðasta degi N1-mótsins. Frá kl. 08 í morgun hefur verið spilað um sæti í mótinu og því verður áfram haldið í dag.
Klukkan 11.30 verða undanúrslitaleikir í öllum deildum á öllum völlum.
Þá er dagur að kvöldi kominn á þriðja degi N1-mótsins og átta liða úrslitum er lokið. Öll úrslit leikja eru nú komin hér inn á síðuna og sömuleiðis uppröðun leikja um sæti á morgun.
Í 8 liða úrslitum í dönsku deildinni mætast kl. 16.45 á velli 7 Breiðablik og Fjölnir og á velli 8 HK og KR. Klukkan 17.20 mætast á velli 7 KS/Leiftur og Valur og á velli 8 Stjarnan og Víkingur.
Í 8 liða úrslitum chileönsku deildarinnar mætast kl. 16.45 á velli 5 Breiðablik og FH og á velli 6 Fylkir og FH 2. Klukkan 17.20 mætast síðan á velli 5 Haukar og Valur og á velli 6 KR og Fram.
Í 8 liða úrslitum brasilísku deildarinnar mætast í dag kl. 16.45 á velli 3 ÍBV og Fjölnir og á velli 4 HK og ÍA. Klukkan 17.20 mætast á velli 3 FH og Breiðablik og á velli 4 KR og Fylkir.