Knattspyrnufélag Akureyrar

Samþykkt á aðalfundi KA í apríl 2001  1. gr. Félagið heitir Knattspyrnufélag Akureyrar, skammstafað K.A. Heimili félagsins er á Akureyri.2.

Lög Knattspyrnufélags Akureyrar

Samþykkt á aðalfundi KA í apríl 2001

kalogo

 

1. gr.

Félagið heitir Knattspyrnufélag Akureyrar, skammstafað K.A. Heimili félagsins er á Akureyri.

2. gr.

Tilgangur félagsins er að vinna að eflingu íþóttastarfsemi á Akureyri, glæða áhuga almennings á gildi

íþrótta og virkja sem flesta til þátttöku í þeim.

3. gr.

Merki félagsins er rauður skjöldur á bláum skildi. Á rauða skildinum er gylltur eða hvítur knöttur og ofan hans standa bókstafirnir KA í hvítum lit. Um skildina er hvítur rammi. Keppnisbúningur félagsins skal vera gulur og blár.

4. gr.

Félagar geta allir orðið sem lagt hafa fram skriflega inngöngubeiðni með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og heimilisfang. Hver deild samþykkir beiðni um inngöngu. Börn og unglingar innan 18 ára aldurs skulu leggja
fram skriflegt leyfi, a.m.k. annars foreldris eða forráðamanns til inngöngu. Hafi þessi skilyrði verið uppfyllt er umsækjandi fullgildur félagi. Allir þeir sem taka þátt í keppni fyrir hönd félagsins skulu vera félagsmenn.

5. gr.

Félagar skulu greiða árgjald til félagsins. Skal það ákveðið á aðalfundi ár hvert. Árgjaldið rennur í aðalsjóð félagsins.

6. gr.

Knattspyrnufélagi Akureyrar skal skipt í deildir. Fjöldi deilda fer eftir fjölda íþróttagreina sem hjá félaginu
eru stundaðar. Aðalstjórn félagsins skal vinna eftir skipuriti sem endurskoðað skal eftir þörfum.
Hver deild skal vera fjárhagslega sjálfstæð og annast daglegan rekstur innan þess ramma sem aðalstjórn og fjárhagsráð setur hverju sinni. Hver deild hefur tekjur af ágóða móta og kappleikja í viðkomandi grein svo og annarri fjáröflun sem hún tekur sér fyrir hendur í samráði við aðalstjórn. Að öðru leyti lúta deildirnar sameiginlegri aðalstjórn félagsins, sem fer með æðsta vald í málum þess milli aðalfunda. Ákvörðun um stofnun nýrrar deildar innan félagsins verður aðeins tekin á aðalfundi.

7. gr.

Aðalstjórn skal skipa þrjá menn í fjárhagsráð til tveggja ára í senn. Hlutverk fjárhagsráðs er að hafa eftirlit með fjárreiðum deilda félagsins. Rekstraráætlanir deilda skulu lagðar fyrir fjárhagsráð til samþykktar amk. tveimur mánuðum fyrir upphaf keppnistímabils viðkomandi deildar. Aðalstjórn setur nánari reglur um starfsemi fjárhagsráðs.

8. gr.

Aðalfund félagsins skal halda í mars ár hvert. Aðalfundur hefur æðsta vald innan félagsins og ákvörðunarrétt í
öllum málum þess. Aðalfund skal auglýsa opinberlega með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.

9. gr.

Dagskrá aðalfundar
1. Formaður setur fundinn
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
5. Lagabreytingar
6. Ákvörðun árgjalda
7. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda - skoðunarmanna.
8. Kosning nefnda.
9. Önnur mál.

10. gr.

Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi. Þó öðlast lagabreytingar og ákvarðanir um stofnun nýrra deilda því aðeins gildi, að þær hljóti samþykki tveggja þriðju hluta þeirra sem atkvæði
greiða, enda taki fullur helmingur þeirra, sem á fundi eru, þátt í atkvæðagreiðslunni. Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar, sé þess óskað. Falli atkvæði jöfn skal kosning endurtekin einu sinni. Verði þá aftur jafnt skal hlutkesti ráða.

11. gr.

Allir skuldlausir félagsmenn 18 ára og eldri hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins.

12. gr.

Félagsfund skal halda ef aðalstjórn telur nauðsynlegt eða ef 10 af hundraði atkvæðisbærra félaga óska þess.
Óskir um félagsfund skulu berast aðalstjórn skriflega auk þess sem tilgreina þarf fundarefni það sem ræða skal. Félagsfund skal boða með sama hætti og reglulegan aðalfund. Reglur um félagsfund eru þær sömu og um
aðalfund að undanskildum lagabreytingum, stjórnarkjöri og stofnun nýrra deilda.

13. gr.

Aðalstjórn félagsins skal skipuð níu mönnum, formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fimm meðstjórnendum. Af fimm meðstjórnendum skal formaður hverrar deildar taka sjálfkrafa sæti í aðalstjórn félagsins. Formaður skal kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Kjörtímabil stjórnar er milli aðalfunda. Á aðalfundi skal einnig kjósa einn varamann stjórnar og tvo endurskoðendur
(skoðunarmenn) reikninga félagsins og einn til vara. Formaður skal jafnan boða varamenn til fundar.
Varamenn hafa ávallt rétt til setu á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt. Varaformenn deilda taka sæti formanns deildar sé hann forfallaður eða aðrir þeir sem deildin tilnefnir.

14. gr.

Formaður boðar til stjórnarfunda, svo oft sem hann telur nauðsynlegt eða ef einhver stjórnarmaður óskar þess.
Stjórnarfundir eru löglegir ef meirihluti stjórnar er mættur. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum. Falli atkvæði jafnt, ræður atkvæði formanns.

15. gr.

Aðalstjórn skal vinna að því að efla félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess útávið. Hún skal einnig samræma starfsemi félagsins innávið og hafa eftirlit með starfsemi deildanna. Hún hefur umráðarétt yfir eignum félagsins og markar stefnu þess í öllum veigamiklum málum. Hún skal þó jafnan hafa samráð við stjórnir deildanna um mál er þær varðar sérstaklega.

16. gr.

Aðalstjórn veitir, að höfðu samráði við stjórnir deildanna, viðurkenningar fyrir íþróttaárangur eða störf í þágu félagsins, samkvæmt sérstakri reglugerð, sem samþykkt skal á aðalfundi.

17. gr.

Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, sem skipuð er þremur mönnum hið fæsta. Skulu þeir kosnir á aðalfundum deildanna, en hver deild skal halda aðalfund árlega. Reglur um fundarboðun, lögmæti fundar, dagskrá og atkvæðagreiðslur sem gilda um aðalfund félagsins, gilda einnig um aðalfund deildanna, eftir því sem við á. Að loknum aðalfundi hverrar deildar sem halda skal sem fyrst að loknu keppnistímabili ár hvert skulu stjórnir deildanna skila aðalstjórn skýrslu sinni um starfsemi deildar, ásamt endurskoðuðum og samþykktum reikningum deildarinnar.
Aðalstjórn skal taka helstu atriði úr skýrslum deildanna upp í skýrslu sína á aðalfundi félagsins.

18. gr.

Vanræki íþróttadeild að halda aðalfund á lögákveðnum tíma, skal aðalstjórn boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.

19. gr.

Komi fram óskir meðal félagsmanna um stofnun nýrrar íþróttdeildar innan félagsins, skal senda aðalstjórn
félagsins þær skriflega, undirritaðar af minnst 100 atkvæðisbærum félögum. Er stjórninni þá skylt að leggja þær fyrir næsta reglulegan aðalfund félagsins. Samþykki aðalfundur stofnun nýrrar deildar, með tilskildum meirihluta skv. 9. gr., skal aðalstjórn sjá um að boða til stofnfundar, sem skal fara fram eftir reglum þeim sem gilda um aðalfundi deilda.

20. gr.

Eigi sjaldnar en þrisvar á ári skal aðalstjórn félagsins halda fund með formönnum deildanna, þar sem þeir
gera stjórninni grein fyrir starfsemi deildanna. Á fundum þessum skal einnig ákveða skiptingu styrkja og annarra tekna aðalsjóðs félagsins milli deildanna og samræma starfsemi þeirra. Komi upp ágreiningur milli einstakra deilda, sker aðalstjórn úr.

21. gr.

Halda skal spjaldskrá yfir alla meðlimi félagsins, svo séð verði á hverjum tíma hverjir eru fullgildir félagar.

22. gr.

Reikningsár félagsins og deilda þess er almanaksárið.

23. gr.

Allar eignir félagsins, hvort sem þær eru í umsjá aðalstjórnar eða einstakra deilda, eru sameign félagsins. Hætti íþróttadeild starfsemi, skal stjórn hennar afhenda aðalstjórn allar eignir hennar svo og fundargerðarbækur og önnur gögn sem varða starfsemi hennar. Verðlaunagripir og verðmæt skjöl. skulu ávallt vera í vörslu aðalstjórnar.

24. gr.

Úrsögn úr félaginu skal tilkynna skriflega til aðalstjórnar.

25. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi og falla jafnframt úr gildi öll eldri lög félagsins.

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Blak

Tennis- og badminton