Sjö ungmenni á úrtaksæfingar

Fótbolti
Sjö ungmenni á úrtaksæfingar
Daníel og Áki á lokahófi 3. fl kk.

Sjö ungmenni á aldrinum 15-16 ára voru boðuð á úrtaksæfingar hjá KSÍ.

Aron Dagur Jóhannsson, Áki Sölvason og Daníel Hafsteinsson æfðu með 1999 æfingahóp ásamt því að spila æfingaleik gegn U17 ára landsliði Íslands skipað leikmönnum 1998 og yngri. Eins og við mátti búast af þessum efnilegu leikmönnum stóðu þeir sig vel.

Anna Rakel Pétursdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Margrét Árnadóttir og Saga Líf Sigurðardóttir fara núna um helgina á æfingar á höfðuborgasvæðinu. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband