Siguróli nýr starfsmaður KA

Almennt
Siguróli nýr starfsmaður KA
Siguróli M. Sigurðsson nýr starfsmaður KA

Siguróli M. Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr starfsmaður á skrifstofu KA.  Undanfarin ár hefur mikil fjölgun verði hjá iðkendum KA og rekstur okkar um leið aukist með hverju árinu.  Ráðning Siguróla er hluti af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað hjá félaginu og vonandi bara fyrsta skrefið í mörgum að því að bæta þjónustu okkar við félagsmenn.

Siguróla þarf vart að kynna fyrir KA-fólki enda nánast alist upp á KA-svæðinu og kemur úr mikilli KA-fjölskyldu.  Sjálfur er Siguróli hrikalega spenntur fyrir því að vera að byrja hjá KA enda hefur KA-heimilið verið hans annað heimili og hlakkar hann til að takast á við spennandi verkefni innan félagsins til að gera félagið enn betra en það er í dag.  

Við óskum Siguróla til hamingju með nýja starfið og hlökkum til að fá hann til starfa í byrjun febrúar. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband