KA - Valur á miðvikudaginn | KA menn ætla að hittast á Akureyri Backpackers

Almennt | Fótbolti
KA - Valur á miðvikudaginn | KA menn ætla að hittast á Akureyri Backpackers
Það verður mögnuð stemming á miðvikudag

Stærsti leikur sumarsins fer fram á miðvikudaginn á Akureyrarvelli þegar að KA tekur á móti Val í undanúrslitum Borgunarbikarsins.

KA menn ætla að hittast á Akureyri Backpackers í miðbænum fyrir leik, mynda stemmingu og halda síðan fylktu liði á völlinn!

Leikurinn sjálfur hefst kl. 18:00 en frá 16:00-17:40 verðum við með upphitun í miðbæjarrómans á Akureyri Backpackers. Við hvetjum alla KA menn og konur til þess að láta sjá sig!


Mögnuð tilboð á  Backpackers fyrir þá sem mæta í gulu.

Hamborgari og drykkur á 1000kr en handhafar gullkorta KA fá það frítt!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband