Duranona besti erlendi leikmaðurinn á Íslandi

Handbolti
Duranona besti erlendi leikmaðurinn á Íslandi
Duranona var magnaður í búningi KA

Í gær fór fram lokahóf þáttarins Handboltalið Íslands á RÚV þar sem farið hefur verið yfir bestu lið íslenskrar handboltasögu. Lið KA árið 1996 kom meðal annars til greina sem besta liðið en Víkingur árið 1980 stóð uppi sem sigurvegari.

Hinsvegar var fyrrum leikmaður KA, Róbert Julian Duranona, valinn besti útlendingurinn til að leika á Íslandi en hann lék með KA tímabilin 1995-1996 og 1996-1997. Kappinn er reyndar Íslendingur í dag en hann fékk Íslenskan ríkisborgararétt á meðan hann lék með KA og tók þá upp nafnið Róbert. Hann býr í dag í Þýskalandi en hann lék handbolta þar eftir að hann yfirgaf KA.

Duranona er vel að þessum titli kominn enda var tími hans á Akureyri ógleymanlegur fyrir alla handknattleiksunnendur. Hér rifjum við upp magnaða takta Duranona á lokamínútum oddaleiks gegn Haukum árið 1997 þar sem hann tryggði KA sæti í lokaúrslitunum. KA varð svo á endanum Íslandsmeistari eftir sigur á Aftureldingu.


KA og Haukar mættust í oddaleik um sæti í úrslitum Íslandsmótsins 1997 í Strandgötu. Haukar höfðu leitt allan leikinn en þegar rétt rúmar 2 mínútur lifðu leiks hafði KA minnkað muninn í eitt mark. Róbert Julian Duranona steig svo upp og kláraði leikinn fyrir KA með tveimur mörkum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband