Bjarki Þór og Gauti Gauta valdir í U19

Fótbolti
Bjarki Þór og Gauti Gauta valdir í U19
Bjarki Þór Viðarsson

Bjarki Þór Viðarsson og Gauti Gautason hafa verið valdir í U19 ára lið Íslands sem leikur tvo vináttuleiki gegn Norður Írum. Leikirnir fara fram í Norður Írlandi 3. og 5. september.

Bjarki Þór hefur komið við sögu í þrettán leikjum hjá meistaraflokki í sumar. Hann á að baki sex landsleiki fyrir U17 ára lið Íslands. Til gamans má geta að Bjarki er á yngra ári í U19 en eins og hann hefur sýnt í sumar þá er hann mjög efnilegur leikmaður. Bjarki Þór er mjög fjölhæfur leikmaður en hefur mest spilað á miðjunni og sem bakvörður með meistaraflokk í vetur og sumar.

Gauti Gauta hefur komið við sögu í fjórtán leikjum hjá meistaraflokki í sumar.  Gauti á að baki 7 landsleiki með U17 og þrjá landsleiki með U18 ára liði Íslands. Gauti er fæddur 1996 og er hans besta staða í miðri vörninni.
 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband