Bjarki Þór og Gauti Gauta byrjuðu í jafntefli

Almennt

Bjarki Þór og Gauti Gauta voru í byrjunarliði U19 þegar það gerði 2-2 jafntefli gegn Norður-Írlandi ytra. Heimamenn voru sterkari í fyrri hálfleik en náðu ekki að nýta sér það. Íslendingar komu sterkari til leiks í seinni hálfleik og skoruðu tvö mörk snemma í hálfleiknum. Það stefndi allt í sigur Íslendinga en Norður-Írar náðu að skora tvö mörk í lokin og jafntefli því staðreynd.

Gauti spilaði 80. mínútur í miðverðinum og Bjarki Þór spilaði 85. mínútur í hægri bakverðinum. Liðin mætast aftur á föstudaginn og koma drengirnir heim á laugardaginn en ná þó ekki Grindavík-KA.

Til gamans má geta að Bjarki Þór og Gauti voru einu útileikmennirnir í byrjunarliði sem leika með íslenskum félögum. Aðrir útileikmenn í byrjunarliðinu leika með unglingaliðum Reading (2), AZ Alkmaar (2), Esbjerg, Heerenveen, Brighton og Ajax.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband