Akureyri mætir ÍR í Breiðholtinu á laugardaginn

Almennt | Handbolti

Akureyri mætir í Breiðholtið á laugardaginn og mætir ÍR klukkan 15:30. Í leikmannahópi ÍR eru þrír fyrrum leikmenn Akureyrar Handboltafélags. Bjarni Fritzson sem er spilandi þjálfari liðsins og í haust gengu þeir Garðar Már Jónsson og Ingvar Heiðmann Birgisson til liðs við ÍR en þeir hafa leikið með 2. flokki Akureyrar.


Bjarni messar yfir sínum mönnum í ÍR. Mynd af fimmeinn.is


Garðar og Birkir staðnir á fætur í leik með 2. flokki Akureyrar í vor

ÍR situr sem stendur í 2. sæti Olís deildarinnar, með fjóra sigra, tvö jafntefli og eitt tap. Þeir gerðu jafntefli við Val og Hauka en töpuðu fyrir toppliði Aftureldingar.

ÍR býr vel að því að hafa Björgvin Hólmgeirsson í sínum röðum en hann hefur verið óstöðvandi og langmarkahæstur leikmanna deildarinnar með 61 mark. Þannig að það er nokkuð ljóst að það þarf að gera allt sem hægt er til að stöðva hann.


Björgvin Hólmgeirsson trúlega með mark í uppsiglingu. Mynd af fimmeinn.is

Þar á eftir kemur vinstri skyttan, Arnar Birkir Hálfdánsson með 32 mörk, þjálfarinn Bjarni Fritzson með 25 mörk. Davíð Georgsson og Jón Heiðar Gunnarsson eru með 20 mörk hvor og á svipuðum slóðum er Sturla Ásgeirsson með 19 mörk en hann hefur reyndar bara spilað fjóra leiki það sem af er.

Við hvetjum alla sem eru staddir á höfuðborgarsvæðinu að kíkja í Austurbergið á laugardaginn og og styðja okkar lið, leikurinn hefst klukann 15:30 (athugið að leiknum hefur verið seinkað um hálftíma).

Það er ekki að sjá að RÚV ætli að sýna frá leiknum en að sjálfsögðu verður heimasíða Akureyri Handboltafélags með beina textalýsingu frá leiknum.

KA/Þór með útileik gegn Fylki á laugardaginn
Það verður fleira í gangi á laugardaginn hjá Akureysku handboltafólki. KA/Þór á útileik við Fylki í Olís deild kvenna og hefst sá leikur klukkan 15:00 í Fylkishöllinni.

Hamrarnir með heimaleik á laugardaginn
Hamrarnir eiga erfiðan heimaleik á laugardaginn þegar Víkingur mætir norður og verður sá leikur í KA heimilinu. Tímasetning á þeim leik er eitthvað á reiki, hann var settur á klukkan 16:00 en heyrst hefur að hann hefjist töluvert síðar þannig að við bendum fólki á að fylgjast vel með fréttum af þeim leik.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband