Akureyri mætir HK í Höllinni í kvöld, mánudag

Handbolti

Það er ástæða fyrir alla handknattleiksunnendur á Akureyri til að fjölmenna í Íþróttahöllina í kvöld en þá fer fram lokaumferð Olís-deildar karla. Sigur í leiknum gefur Akureyri tækifæri á að komast úr 7. sætinu. Til að það geti orðið þarf FH að vinna ÍR en sá leikur fer fram á sama tíma. Það er allavega ljóst að í þeim leik verður barist af fullum krafti en sigurliðið í þeim leik fer í úrslitakeppnina ef Fram tapar fyrir Val.
Það má því segja að það sé gríðarleg spenna í þessari lokaumferð þó svo að Haukar séu orðnir deildarmeistarar og HK hafna í neðsta sætinu.

Þrátt fyrir að vera á botninum er engin hætta á öðru en að HK-menn ætli að berjast af fullum krafti enda stolt leikmanna í húfi. Þær breytingar hafa orðið hjá HK frá því að þeir komu hingað síðast er að skipt hefur verið um þjálfara, en Samúel Ívar Árnason var látinn taka pokann sinn en Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennalandsliðsins ráðinn í hans stað.

Atkvæðamestu menn HK eru Atli Karl Bachmann sem hefur skorað 91 mark í deildinni, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 77 mörk og Leó Snær Pétursson 74.

Í síðustu tveim umferðum hefur Garðar Svansson þó verið HK liðinu mikilvægur, Garðar var markahæstur með 8 mörk gegn FH og skoraði 5 gegn Fram.

Akureyrarliðið hefur leikið mjög vel í síðustu leikjum og mikilvægt að enda tímabilið með þeim krafti sem liðið hefur sýnt í síðustu leikjum og að áhorfendur láti sitt ekki eftir liggja og taki fullan þátt í fjörinu í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:30 eins og allir aðrir leikir lokaumferðarinnar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband