Knattspyrnufélag Akureyrar

Knattspyrnufélag Akureyrar

Fréttir

Akureyri gegn Stjörnunni á föstudaginn klukkan 19:00


Fyrsta umferð þriðja hluta N1 deildarinnar hefst nú í vikunni, Akureyri fær heimaleik gegn Stjörnunni og verður hann leikinn á föstudaginn klukkan 19:00.
Akureyri er sem kunnugt er komið í 2. sæti N1 deildarinnar eftir magnaðan sigur á HK í síðustu umferð og ákaflega mikilvægt að halda áfram stemmingunni sem komin er í liðið og verja sætið. Lesa meira

Aðalfundur Blakdeildar KA

Aðalfundur Blakdeildar KA verður haldinn miðvikudaginn 17. mars kl. 17:00 í KA heimilinu. Hefðbundin aðalfundarstörf. Blakáhugamenn, foreldrar og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta.

Stjórn Blakdeildar KA


Leikur hjá 3. flokki karla á föstudaginn

Næstkomandi föstudagskvöld klukkan 21:00 spilar KA1 við lið Aftureldingar.
KA1 liðið er í mikilli baráttu um deildarmeistaratitilinn. Við viljum hvetja fólk til að koma og horfa á þessa frábæru drengi og hvetja þá áfram í baráttunni.


Fullt hús hjá stelpunum í 4. flokki um helgina

Stelpurnar í 4. flokki kvenna fóru suður um helgina og spiluðu þar tvo leiki.
Á föstudagskvöldinu var spilað við lið Fjölnis og reyndist sigurinn nokkuð auðveldur fyrir KA stelpur, 27-13. Þær sem eru nýbyrjaðar að æfa fengu fínan spiltíma í þessum leik og stóðu sig með prýði auk þess sem þær „reyndari" stóðu sig með miklum sóma.

Lesa meira

Aðalfundur Handknattleiksdeildar KA

Aðalfundur Handknattleiksdeildar KA verður haldinn í KA heimilinu mánudaginn 15. mars. kl.20:00.
Dagskrá:

  1. Formaður setur fundinn
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
  5. Kosning stjórnar
  6. Önnur mál.

Fyrirmyndafélag
KEA_hlið_allar
Grófargil

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak