Júdódeild KA

Handbók júdódeildar KA vegna þjálfunar og keppni 4-10 ára: Markmið -Að auka hreyfiþroska -Að fyrstu kynni af júdó verði jákvæð -Að upplýsa börnin um

Handbók júdódeildar KA

Handbók júdódeildar KA vegna þjálfunar og keppni


4-10 ára:

Markmið

-Að auka hreyfiþroska

-Að fyrstu kynni af júdó verði jákvæð

-Að upplýsa börnin um nauðsyn holls matarræðis

-Að innleiða börnunum strax einkunnarorð júdó sem eru:

Seiryoku zenyo -- Hámarksárangur með lágmarksfyrirhöfn

Jita kyoei -- Sameiginleg hagsæld og velferð með náunga þínum

Leiðir

-Að æfingarnar séu fjölþættar og stuðli að bættum hreyfiþroska. Hér er átt við æfingar sem örva hinar ýmsu skynstöðvar og unnið sé með grófhreyfingar og fínhreyfingar.

-Að þjálfunin fari fram í leikformi og séu skemmtilegar.

-Að öll börn fái jöfn tækifæri til þátttöku.

 

 

 

Keppni

 

Verðlaun

-Mót eru aðeins haldin innan félags.

-Mikil áhersla skal lögð á að allir fái tækifæri til að vera með í keppninni og að enginn skuli útilokaður vegna getu.

-Leikur og leikgleði ráði ríkjum í keppninni.

-Börnunum skal innrætt það að úrslit í keppni skipti ekki máli, eina sem þau eiga að stefna að sé að gera eins vel og þau geta, það er markmiðið, sigur eða tap er aukaatriði.

 

-Allir fá verðlaun.

 

11-14 ára:

Markmið

-Að bæta tæknilega færni.

-Að auka þol.

-Að auka kraft.

-Að auka liðleika.

-Að vekja íþróttaáhuga fyrir lífstíð.

-Að upplýsa börnin um nauðsyn holls matarræðis

-Að innleiða börnunum einkunnarorð júdó sem eru:

Seiryoku zenyo -- Hámarksárangur með lágmarksfyrirhöfn

Jita kyoei -- Sameiginleg hagsæld og velferð með náunga þínum

Leiðir

-Að æfingarnar séu fjölþættar.

-Að aðaláherslan í þjálfuninni sé á þjálfun tæknilegrar færni.

-Að æfingarnar feli í sér þol, kraft og liðleikaæfingar.

-Að æfingarnar séu skemmtilegar.

-Að öll börn fái tækifæri til æfinga og keppni miðað við þroska og getu.

 

Keppni

Verðlaun

-Þátttaka í mótum er bæði innan félags og á landsvísu.

-Mikil áhersla skal lögð á að allir fái tækifæri til að vera með í keppninni og að enginn skuli útilokaður vegna getu.

-Leikur og leikgleði ráði ríkjum í keppninni.

-Börnunum skal innrætt það að úrslit í keppni skipti ekki máli, eina sem þau eiga að stefna að sé að gera eins vel og þau geta, það er markmiðið, sigur eða tap er aukaatriði.

-Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku.


-Efstu þrír fá gull, silfur og bronsverðlaun.

 

 

 

15-16 ára:

Markmið

-Að auka þol.

-Að auka kraft.

-Að auka hraða.

-Að auka liðleika.

-Að viðhalda og bæta áður lærða tæknilega færni.

-Að skapa félagslega jákvæðar aðstæður og umhverfi með íþróttastarfinu

-Að kynna keppnis- og afreksíþróttamennsku og þann hugsunarhátt sem nauðsynlegur er til að árangur náist.

-Að kynna þá möguleika sem bjóðast þeim sem vilja iðka íþróttir sem líkamsrækt og vegna félagsskaparins.

-Að upplýsa unglingana um nauðsyn holls matarræðis

-Að innleiða unglingunum einkunnarorð júdó sem eru:

Seiryoku zenyo -- Hámarksárangur með lágmarksfyrirhöfn

Jita kyoei -- Sameiginleg hagsæld og velferð með náunga þínum

Leiðir

-Að æfingarnar séu fjölþættar.

-Að æfingarnar byggist meira en áður á þoli, krafti og hraðaæfingum ásamt liðleikaþjálfun.

-Að þeirri tæknilegu færni sé viðhaldið sem áður var lærð.

-Að sérstök áhersla sé lögð á að skapa unglingum félagslega góðar aðstæður innan íþróttaliðsins eða félagsins. Til þess skulu öll tækifæri sem bjóðast til hópþátttöku, hópferða og félagslegra athafna innan vallar sem utan nýtt til hins ítrasta.

-Að fræðsla um vöxt og þroska fari fram.

-Að fræðsla um heilbrigðan lífsstíl fari fram.

-Að allir unglingar fái tækifæri til æfinga og keppni miðað við þroska og getu.

 


Keppni

 

 Verðlaun

-Þátttaka í mótum er bæði innan félags, á landsvísu og erlendis.

-Mikil áhersla skal lögð á að allir fái tækifæri til að vera með í keppninni og að enginn skuli útilokaður vegna getu.

-Leikur og leikgleði ráði ríkjum í keppninni.

-Unglingunum skal innrætt það að úrslit í keppni skipti ekki máli, eina sem þau eiga að stefna að sé að gera eins vel og þau geta, það er markmiðið, sigur eða tap er aukaatriði.

 

-Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku.


-Efstu þrír fá gull, silfur og bronsverðlaun.

 

 

17 ára og eldri:

Markmið

-Að allir þjálfunarþættir séu teknir fyrir.

-Að auka þjálfunarálagið verulega.

-Að viðhalda og bæta áður lærða tæknilega færni.

-Að skapa félagslega jákvæðar aðstæður og umhverfi með íþróttastarfinu

-Að kynna keppnis- og afreksíþróttamennsku og þann hugsunarhátt sem nauðsynlegur er til að árangur náist.

-Að kynna þá möguleika sem bjóðast þeim sem vilja iðka íþróttir sem líkamsrækt og vegna félagsskaparins.

-Að upplýsa um nauðsyn holls matarræðis

-Að innleiða einkunnarorð júdó sem eru:

Seiryoku zenyo -- Hámarksárangur með lágmarksfyrirhöfn

Jita kyoei -- Sameiginleg hagsæld og velferð með náunga þínum

Leiðir

-Að æfingarnar séu alhliða og fjölþættar þannig að allir þjálfunarþættir séu teknir fyrir með tilliti til stöðu og hæfileika hvers einstaklings.

-Að sérhæfð afreksþjálfun fari fram og æfingaálagið sé aukið verulega frá því sem áður var sé stefnt að þátttöku í afreksíþróttum.

-Gerður sé greinarmunur á afreksíþróttum eða íþróttum þar sem árangur í keppni er aðalmarkmiðið annars vegar og hins vegar íþróttum þar sem áhersla er lögð á líkamsrækt og félagsskapinn umfram árangur í keppni sem slíkri.

-Að þeirri tæknilegu færni sé viðhaldið sem áður var lærð.

-Að fræðsla um heilbrigðan lífsstíl fari fram.

-Að allir fái tækifæri til æfinga og keppni miðað við þroska og getu.

 

 

Keppni

 

Verðlaun

-Þátttaka í mótum er bæði innan félags, á landsvísu og erlendis.

-Mikil áhersla skal lögð á að allir fái tækifæri til að vera með í keppninni og að enginn skuli útilokaður vegna getu.

-Leikur og leikgleði ráði ríkjum í keppninni.

-Úrslit í keppni skipti ekki máli, eina sem stefnt er að er að sé að gera eins vel og hver og einn getur, það er markmiðið, sigur eða tap er aukaatriði.

 

 -Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku.

 
-Efstu þrír fá gull, silfur og bronsverðlaun.

 

 

 

Fyrirmyndafélag
Samherji
KEA_hlið_allar

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Blak

Tennis- og badminton