Knattspyrnufélag Akureyrar

Handbolti

thtr97831.jpgthtr9758.jpgthtr1204.jpgthtr1152.jpgthtr6117.jpgthtr1085.jpgthtr1140.jpgthtr4257.jpgthtr3599.jpgthtr3544.jpgthtr1077.jpgthtr6168.jpgthtr6111.jpgthtr1092.jpgthtr9779.jpgthtr1187.jpgthtr1127.jpgthtr6134.jpgthtr1101.jpgthtr1203.jpgthtr1096.jpg

Fréttir

Handboltaæfingar byrjaðar - Tímataflan komin


Nú er handboltinn byrjaður aftur eftir sumarfrí, æfingarnar eru hafnar samkvæmt tímatöflu.  Vonandi sjáum við sem flesta, hressa og káta eftir gott sumar, öllum er velkomið að koma og prófa. Fréttabréf um starf vetrarins verður sett inn á síðuna síðar.
Smelltu hér til að skoða æfingatöfluna.

Fundarboð: 4. fl. karla - Fundur á miðvikudag


Hér er tilkynning til 4. fl. karla í handbolta:

Fundur verður haldin í KA - Heimilinu n.k. miðvikudag kl 17:00 í KA - Heimilinu. Það er mjög mikilvægt að allir mæti. Látið fundarboðið berast! Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta skulu hafa samband við undirritaðan.

Jóhannes Bjarnason
GSM: 6623200


Kjarnafæðismótið 2010 24 - 25. september - Skráning hafin


Dagana 24. og 25. september verður Kjarnafæðismótið í handbolta haldið en mótið er ætlað meistaraflokki kvenna. Mótið verður haldið í KA - heimilinu en einnig verður þar haldin grillveisla ásamt verðlaunafhendingu á laugardagskvöldinu. Aðstandendur mótsins eru farnir að taka á móti skráningum. Það er Jóhannes G. Bjarnason, Jói Bjarna, sem veitir frekari upplýsingar og tekur við skráningum í síma 6623200 eða á netfanginu joigb@akmennt.is. Hægt verður að gista í KA - heimilinu og ekkert þáttökugjald verður á mótið.

Æfingar hjá mst. flokk kvenna, 3. flokk kvenna og 4. flokk kvenna.

Mst. flokkur kvenna og 3. flokkur kvenna hóf æfingar nú í síðustu viku og 4. flokkur kvenna byrjar eftir helgi. 

Þjálfarar flokkana vilja því koma því á framfæri hvenær næstu æfingar eru. 

Mst. flokkur kvenna á næst æfingu klukkan 18:00 upp í KA heimili á mánudaginn.
Forföll berist til Bróa í síma 863-2675 

3. flokkur kvenna á einnig æfingu klukkan 18:00 upp í KA heimili á mánudaginn. 
Báðir flokkar mæti með inni- og útiföt. 

Æfingar hefjast hjá 4. flokk kvenna á þriðjudaginn og er mæting upp í KA heimili klukkan 16:00. Leikmenn mæti með inni- og útiföt. 

Þjálfarar

Partille Cup, kveðja frá þjálfurum og fararstjórum

Nú þegar hópurinn hefur vonandi allur skilað sér heim og engin stórslys orðið á fólki er vert að þakka öllum þeim sem komu að þessari ferð kærlega fyrir. 
Krakkarnir voru félagi sínu og foreldrum til sóma innan vallar sem utan og aginn sem þau búa yfir á eftir að reynast þeim vel í framtíðinni.
Lesa meira

Fyrirmyndafélag
Gamath
Tengi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak