Knattspyrnudeild KA

Afreksvið framhaldskólanna á Akureyri Samstarfsverkefni MA og VMA Við þökkum ykkur fyrir þann áhuga sem

Afrekshópur

Afreksvið framhaldskólanna á Akureyri
Samstarfsverkefni MA og VMA

Við þökkum ykkur fyrir þann áhuga sem félagið hefur sýnt því verkefni að koma á íþróttaafrekssviði við framhaldsskólana á Akureyri. Þess konar afrekssvið yrði góður stuðningur við þá einstaklinga sem hafa áhuga á því að ná langt í sinni íþrótt og stunda nám samhliða.

Á vorönn 2009 munu Menntaskólinn og Verkmenntaskólinn á Akureyri bjóða framangreindum íþróttafélögum og deildum upp á afrekssvið íþrótta. Við ætlum að byrja rólega og þessi fyrsta önn verður prufuönn með einum æfingadegi. Stefnt verður að því að byrja afrekssvið með tveimur æfingadögum og stoðgreinum í haust.

Nemendur framhaldsskólanna, sem jafnframt eru iðkendur félaganna, fá þarna tækifæri á að stunda sína íþrótt í skólatíma með sínum þjálfara. Félögin munu fá afnot af Boganum og Íþróttahöllinni á miðvikudagsmorgnum fyrir æfingar sínar.

Félögin ákveða hvaða iðkendur þau velja að taka með í þetta verkefni í samráði við skólana. Iðkendur verða að vera tilbúnir til að vilja stunda sína íþrótt af kappi og lúta vissum skildum sem skólarnir setja m.a. varðandi mætingu og hugarfar til náms og íþrótta.

Framkvæmd prufuannarinnar eftir áramót verður eftir þessum atriðum:
  • Afreksbrautin er fyrir góða nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða námi.
  • Einstakir nemendur gætu lent í árekstri við önnur fög en unnið verður úr því með þeim einstaklingum.
  • Æfingatími á miðvikudögum kl. 08.00-09.45. Íþróttahöllin, Boginn, úti eða aðrir staðir ef félögin ákveða það.
  • Félögin verða með sína þjálfara og leggja fram æfingaplan annarinnar til skólanna.
  • Nemendur fá metna eina námseiningu fyrir þessa þjálfun sem er metinn sem valáfangi.
  • Nemendur sýni rétt hugarfar til náms og íþrótta og mætingar í þessa þjálfun þurfa að vera 90%.
  • Nemendur sviðsins séu vímuefnalausir og tóbakslausir og séu góðar fyrirmyndir fyrir félögin og skólana.
  • Skóli og félag vinna að því að gera áfangalýsingu fyrir æfingarnar/áfangann í samræmi við aðrar áfangalýsingar skólanna.
  • Skólarnir sækja um styrk til þessa verkefnis sem kæmi þá til móts við kostnað félaganna. Ekkert fast í hendi ennþá!

Fulltrúar skólanna munu svo á önninni, í samráði við félögin, vinna áfram að framtíðarskipulagi afrekssviðs við framhaldskólanna.
Þar verður unnið áfram að eftirfarandi atriðum:
  • Framlag skóla, íþróttafélaganna, Akureyrarbæjar, ÍBA, ÍSÍ
  • Kostnaður og kostnaðarskipting
  • Námsskrárgerð, áfangalýsingar
  • Skipulag æfinga, innihald æfinga
  • Skipulag fræðslu (stoðgreinar)
  • Samningar varðandi æfinga/keppnisferðir
  • Kröfur og skyldur skóla, íþróttafélaga og nemenda afrekssviðsins

Nánari upplýsingar veita Ólafur (8617692) og Unnar (8684547)

F.h. Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri
Ólafur H. Björnsson
Unnar Vilhjálmsson

Nánari upplýsingar veita fyrir hönd KA:
Stefán Ólafsson  6927141  4624070
Dean Martin  8617172
Fyrir hönd skólanna : Ólafur VMA (8617692) og Unnar MA (8684547)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak