laugardagur 04.febrúar 2012 17:36 - Óskar Þór Halldórsson - Lestrar 115
Á morgun, sunnudaginn 5. febrúar kl. 14.00, verður úrslitaleikur Hleðslumótsins í knattspyrnu í Boganum þar sem mætast KA1 og
Þór1. Bæði lið eru ósigruð í mótinu að riðlakeppni lokinni.
Síðast mættust þessi aðallið KA og Þórs á sama vettvangi - í úrslitaleik Soccerademótsins - fyrir um ári og þá hafði KA betur. Ef að líkum lætur verður þetta fyrsti af þremur leikjum liðanna í ár - enda bæði liðin í fyrstu deildinni - og verður athyglisvert að sjá stöðu þeirra á þessum tímapunkti á undirbúningstímabilinu fyrir deildarkeppnina, sem hefst í maí.
Ef að líkum lætur verður leikur nágrannaliðanna á morgun dæmigerður KA/Þórs leikur - barátta um alla bolta frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. KA-menn eru hvattir til þess að fjölmenna í Bogann og styðja strákana til sigurs.



