
Pétur Ólafsson
Yfirþjálfari yngriflokka
petur@port.is
861-2884
Pétur Ólafsson er 42ja ára gamall. Hann hóf sinn þjálfaraferil árið 1988 þegar hann þjálfaði 2. flokk kvenna og 4. flokk
karla hjá KA. Í það heila hefur hann þjálfað í tíu ár hjá KA – þar af þriðja flokk í fimm ár,
2. flokk í tvö ár og meistaraflokk kvenna í tvö ár. Þá hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki KA
í eitt ár – árið 2003. Á árunum 1997 til 2000 þjálfaði Pétur Nökkva á Akureyri og undir hans stjórn vann
félagið sér sæti í annarri deild árið 2000. Þá þjálfaði hann 1.deildarlið Dalvíkinga árið 2001.
Síðustu tvö árin hefur Pétur þjálfað meistaraflokks Þórs á Akureyri. Pétur þjálfaði þriðja
flokkinn hjá KA tímabilið 2006-2007 ásamt Steingrími Erni Eiðssyni og náðu þeir frábærum árangri með hópinn.
Þrjú lið tóku þátt í Íslandsmótinu. A-liðið vann Blackpool æfingamót í Englandi um páskana,
Jónssprettsmótið og kórónuðu svo sumarið með Íslandsmeistaratitlinum sjálfum. Pétur þjálfar þriðja flokk einnig
tímabilið 2007-2008.
Vorið 2008 var hann svo ráðinn yfirþjálfari allra flokka hjá KA.
Sjá frétt um málið hér.
Vorið 2008 var hann svo ráðinn yfirþjálfari allra flokka hjá KA.
Sjá frétt um málið hér.



