Knattspyrnudeild KA

Knattspyrna KA

getImg1.jpgFO1D4394.jpgFO1D3360.jpgFO1D3966.jpgFO1D9508.jpggetImg.jpggetImg2.jpgFO1D3982.jpgFO1D3904.jpgFO1D3186.jpgFO1D4385.jpgFO1D3090.jpgFO1D4389.jpgFO1D4085.jpg

Fréttir

Vangaveltur Gunnars Níelssonar eftir tap gegn Þór og fleira

Frá leiknum sl. fimmtudagskvöld
Eins og fólk veit lék KA gegn Þór sl. fimmtudag á Þórsvellinum og við töpuðum 3-0.
Það má segja að umfjöllun um þennan leik á þessum tímapunkti eigi ekki mkið erindi og því mun ég ekki fara úti í lýsingar í smáatriðum, tel að það sé í raun óþarfi. Lesa meira

Ráðast örlög vina okkar norðan Glerár á fimmtudag?


Stuðningsmenn KA ætla að hittast í KA-heimilinu fyrir leik liðsins gegn nágrönnunum í Þór og að sjálfsögðu mæta allir í gulu. Við munum hittast kl. 16:15, borða saman og taka létt spjall. Þeir sem hafa hug á því að borða með hópnum þurfa að vera mættir kl. 16:30 í allra síðasta lagi. Gengið verður fylktu liði á völlinn en leikurinn hefst kl. 18:00. Aðgangseyrir á völlinn er kr. 1.000,- fyrir 17 ára og eldri en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Lesa meira

Umfjöllun: KA - Leiknir


Það var vissulega sól en gríðarlega mikið vantaði  uppá að það væri ylur þegar við tókum á móti Leikni á glæsilegum Akureyrarvelli í 19 umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu sl. laugardag.  Þrátt fyrir kulda var nokkuð vel mætt á völlinn og voru stuðningsmenn gestana áberandi en okkur létu  líka í sér heyra.
Lesa meira

Yngri flokkar: Undanúrslit

Ásmundur og félagar mæta Þór í undanúrslitum
Síðustu helgi spilaði A og B-lið 5.fl kv og 5.fl kk undanriðla. Stelpurnar spiluðu á KA vellinum og strákarnir á Fram vellinum. B-lið 5.fl karla vann sinn riðil og spila því undan úrslita leik. Hin liðin í 5.fl náðu hinsvegar ekki að fylgja B-liði strákan eftir og duttu úr leik.
B-lið 5.fl karla spilar næstkomandi sunnudag á móti Þór á Þórsvellinum en sigurvegarinn úr þeim leik spilar til úrslita.

Lesa meira

Sigur hjá 2. fl og jafntefli hjá m.fl. í dag

Guðmundur Óli setti boltan í markið í dag
Bæði m.fl. og 2. fl. léku leiki í dag. M.fl. tók á móti Leikni í mikilli norðanátt á Akureyrarvelli í dag og voru lokatölur þar 2-2. Leiknismenn komust yfir 0 - 2 og var staðan þannig í hálfleik. Okkar menn sýndu hinsvegar mikinn karakter, líkt og í Fjölnisleiknum, og jöfnuðu 2 - 2 með mörkum frá Guðmundi Óla og Hauki Heiðari.
Lesa meira

KA - Leiknir: Viðtöl við leikmenn beggja liða

Halldór Kristinn með boltann
Leikur KA gegn Leikni vekur mikla athygli, og nú þegar er ljóst, að nokkur fjöldi stuðningsmanna Leiknis mun fylgja liðinu norður yfir heiðar.  Nokkuð hefur verið spurt útí leiktímann en hann er til kominn vegna þess að gestir okkar keyra hingað og vissulega munur um það hvort þú þarft að leggja af stað kl 06 eða 07.  Ósk Leiknismanna var því samþykkt af okkur sem þekkjum  kosti þess og reyndar ókosti líka að keyra í útileiki.
Lesa meira

Upphitun: KA - Leiknir

Úr fyrri leik liðanna
Það er stórleikur sem boðið verður uppá á Akureyrarvelli nk. laugardag kl 15 þegar Leiknir kemur í heimsókn.  Gestir okkar eru í efsta sæti fyrstu deildar og þrátt fyrir að hinir ýmsu spámenn hafi nú reiknað með því að liðinu fatist flugið hafa þeir þvert á þær spár bara hert þetta flug sitt.  Með sigri má segja að Leiknismenn þurfi að fara að skoða vel hvað er í boði í efstu deild. 
Lesa meira

Fyrirmyndafélag
Ölgerðin
Greifamót fot

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak