Knattspyrnufélag Akureyrar : Blakdeild

 Íþróttafélögin KA – blakdeild - og UFA (Ungmennafélag Akureyrar) bjóða upp á íþróttaskóla fyrir krakka í 1. – 3. bekk.  Stefna ÍSÍ hvetur til

Íþróttaskóli Blakdeildar KA og UFA

 Íþróttafélögin KA – blakdeild - og UFA (Ungmennafélag Akureyrar) bjóða upp á íþróttaskóla fyrir krakka í 1. – 3. bekk.  Stefna ÍSÍ hvetur til þess að íþróttafélög gefi öllum börnum upp að 9 – 10 ára aldri tækifæri til að stunda íþróttir í fjölbreyttum íþróttaskólum og er þetta samstarf liður í því að fylgja þeirri stefnu.  

 Aðalíþróttagreinar skólans verða: 

·       Frjálsíþróttir
·       Blak

Einnig verða kynntar ýmsar fleiri íþróttagreinar og lögð áhersla á leiki, þrautir og kerfjandi líkamsþjálfun sem stuðlar að auknum hreyfiþroska barna.

Æfingatímar eru tvisvar í viku kl. 16:00 – 17:00 á mánudögum og  fimmtudögum í íþróttahúsinu við Laugargötu.  Aðalþjálfari er Unnar Vilhjálmsson íþróttakennari og með honum þjálfa Sesselja og Alda Ólína. 

Ekkert kostar að koma og prófa í eina viku. 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Blak

Tennis- og badminton