Íþróttafélögin KA – blakdeild - og UFA (Ungmennafélag Akureyrar) bjóða upp á íþróttaskóla fyrir krakka í 1. – 3. bekk. Stefna ÍSÍ hvetur til þess að íþróttafélög gefi öllum börnum upp að 9 – 10 ára aldri tækifæri til að stunda íþróttir í fjölbreyttum íþróttaskólum og er þetta samstarf liður í því að fylgja þeirri stefnu.
Aðalíþróttagreinar skólans verða:
· Frjálsíþróttir
· Blak
Einnig verða kynntar ýmsar fleiri íþróttagreinar og lögð áhersla á leiki, þrautir og kerfjandi líkamsþjálfun sem stuðlar að auknum hreyfiþroska barna.
Æfingatímar eru tvisvar í viku kl. 16:00 – 17:00 á mánudögum og fimmtudögum í íþróttahúsinu við Laugargötu. Aðalþjálfari er Unnar Vilhjálmsson íþróttakennari og með honum þjálfa Sesselja og Alda Ólína.
Ekkert kostar að koma og prófa í eina viku.



