Bikarmóti BLÍ í 2. og 3. flokki beggja kynja lauk á Akureyri í 22. janúar kl. 15:30. Liðin í 2. fl. kk drógu sig úr keppni og því voru engir bikarmeistarar krýndir í þeim flokki þetta árið. Mótið tókst í alla staði vel og voru leikmenn og þjálfarar/fararstjórar sjálfum sér og íþróttafélögum sínum til mikils sóma. KA var bikarmeistari í öllum flokkum þ.e. 2. og 3. fl. kvk og 3. fl. kk. Öll úrslit og sætaröðun má sjá á krakkablak.bli.is. Sýnt var beint á netinu frá fjölmörgum leikjum mótsins og er það von mótshaldara að það hafi mælst vel fyrir. Blakdeild KA þakkar keppendum og öllum þeim sem komu að mótinu fyrir frábæra helgi.




