Knattspyrnufélag Akureyrar : Blakdeild

Æfingagjöld veturinn 2009-2010.   6. fl. Íþróttaskóli (1.-3. bekkur)  Æfingagjöld pr. önn kr. 13.000 5. fl. (4-6 bekkur) Æfingagjöld pr. önn kr.

Æfingagjöld

Æfingagjöld veturinn 2009-2010.

 

6. fl. Íþróttaskóli (1.-3. bekkur)  Æfingagjöld pr. önn kr. 13.000

5. fl. (4-6 bekkur) Æfingagjöld pr. önn kr. 16.000 (Lækka á fyrri önn niður í KR. 10.000 vegna Samherjastyrks)

4. fl. (7-8 bekkur) Æfingagjöld pr. önn kr. 16.000 (Lækka á fyrri önn niður í KR. 10.000 vegna Samherjastyrks)

3. fl. (9-10 b. og 1b. framhaldssk.) Æfingagjöld pr. önn kr. 16.000 (Lækka á fyrri önn niður í KR. 10.000 vegna Samherjastyrks).

 

Afslættir eru gefnir vegna systkina sem æfa blak 20% fyrir fyrsta systkin, 40% fyrir annað, 60% fyrir þriðja o.s.fr.

Einnig er gefinn 10% afsláttur hjá hverri deild KA ef iðkendur æfa fleiri en eina grein gegn framvísun kvittunar. Nánari upplýsingar veitir Fanney Valsdóttir fanney@intrum.is

 

Æfingagjöld greiðist á auglýstum greiðsludögum í KA heimilinu eða millifærist inn á reikning Blakdeildar KA 162 05 63320 6708902289 (ATH setja nafn barn í Stutt tilvísun. og senda póst á fanney@intrum.is )

 

Við minnum ykkur á að WC-pappírs- og eldhúsrúllusalan er alltaf í gangi og þið getið ráðstafað inneignum vegna pappírssölu á móti æfingagjöldum en þá þurfið þið að mæta til að afhenda kvittanir fyrir greiðslu á pappírnum. Í þeim tilfellum er ekki nóg að leggja mismuninn inn á reikninginn.

Fjáröflun

WC-pappír er hægt að fá í Endurvinnslunni eins og áður á kr 6.000 ballann og eldhúsrúllur á kr. 4.000 ballann. Þið greiðið strax og seljið svo pakkann fyrir sömu upphæð eins og ávallt. Hluti af ágóðanum rennur til reksturs blakdeildarinnar auk þess sem hver seldur balli af WC pappír gefur kr. 800 fyrir iðkandann og kr. 500 fyrir eldhúsrúllurnar – þeim fjárhæðum er svo hægt að ráðstafa til lækkunar á æfingagjöldum og kostnaði við keppnisferðir. Kvittanir gilda sem inneignarnótur þannig að mikilvægt er að geyma þær vel.

Við viljum einnig hvetja ykkur til að hafa samband við yngriflokkaráðið ef þið hafið einhverjar góðar hugmyndir að fjáröflun.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak