Knattspyrnufélag Akureyrar : Blakdeild

KA bikarmeistari í 2. og 3. fl. Bikarmóti BLÍ í 2. og 3. flokki beggja kynja lauk á Akureyri sunnudaginn 22. janúar. Liðin í 2. fl. kk drógu sig úr keppni

KA bikarmeistari í 2. og 3. fl.

Bikarmóti BLÍ í 2. og 3. flokki beggja kynja lauk á Akureyri sunnudaginn 22. janúar. Liðin í 2. fl. kk drógu sig úr keppni og því voru engir bikarmeistarar krýndir í þeim flokki þetta árið. Mótið tókst í alla staði vel og voru leikmenn og þjálfarar/fararstjórar sjálfum sér og íþróttafélögum sínum til mikils sóma. KA var bikarmeistari í öllum flokkum þ.e. 2. og 3. fl. kvk og 3. fl. kk.

Öll úrslit og sætaröðun má sjá á krakkablak.bli.is. Sýnt var beint á netinu frá fjölmörgum leikjum mótsins og er það von mótshaldara að það hafi mælst vel fyrir. Blakdeild KA þakkar keppendum og öllum þeim sem komu að mótinu fyrir frábæra helgi.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Júdó

Blak