Knattspyrnufélag Akureyrar : Blakdeild

KA tryggði sér úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í blaki - myndir Aðalfundur Blakdeildar KA Byrjað að grafa fyrir gervigrasvellinum Grautur,

Fréttir

KA tryggði sér úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í blaki - myndir


Það var allt undir í kvöld þegar KA tók á móti HK í fjórða leik liðanna í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í blaki. Bikarinn var í húsinu enda hefði HK tryggt sér meistaratitilinn með sigri í leiknum þar sem þeir voru 2-1 yfir í einvíginu.

Lesa meira

Aðalfundur Blakdeildar KA


Aðalfundur  Blakdeildar KA verður haldinn í fundasal KA-heimilisins þriðjudaginn 19. mars n.k. kl. 20:00.

Dagskrá fundarins:

1.   Skýrsla formanns
2.   Reikningar deildarinnar
3.   Kosning nýrrar stjórnar
4.   Önnur mál

Hvetjum alla blakspilara og aðra velunnara deildarinnar til að mæta.

 

Stjórnin


Byrjað að grafa fyrir gervigrasvellinum

Í dag var byrjað að grafa fyrir hinum nýja gervigrasvelli á KA-svæðinu.
Í morgun var hafist handa við að grafa fyrir væntanlegum gervigrasvelli á KA-svæðinu. Í stað moldar verður keyrt möl í holuna og síðan er ætlunin að fergja svæðið í ákveðinn tíma áður en lengra verður haldið með framkvæmdina. Lesa meira

Grautur, skúffukakka og fyrsta skóflustunga nýja gervigrasvallarins á morgun

Það verður mikið um að vera í KA-heimilinu á morgun og síðan aftur annað kvöld þegar blásið verður til mikillar 85 ára afmælishátíðar. Lesa meira

Mikasadeildin: KA - Stjarnan


Stjarnan heimsótti KA í gær og var bæði leikið í karla- og kvennaflokki í Mikasadeildinni. KA-menn sigruðu í karlaflokki 3-1 í miklum baráttuleik. KA-menn voru seinir í gang í fyrstu hrinunni og töpuðu henni naumlega 26-28. Þeir tóku svo næstu þrjár 25-21, 25-22 og 26-24.  Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf

Félagið

Fótbolti

Handbolti

Blak

Tennis- og badminton